Vísitala neysluverðs í september 2005 er 246,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,52% frá fyrra mánuði,samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 231,4 stig, hækkaði um 1,71% frá því í ágúst.

Sumarútsölum er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 13,0% (vísitöluáhrif 0,60%). Verð á dagvörum hækkaði um 1,7% (0,28%) og á bensíni og gasolíu um 4,9% (0,25%).

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,2% (0,19%). Þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,22% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,03%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% sem jafngildir 7,6% verðbólgu á ári (5,7% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í september 2005, sem er 246,9 stig, gildir til verðtryggingar í október 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.875 stig fyrir október 2005.