Neytendastofa hefur lagt 440 þúsund króna stjórnvaldssekt á Húsasmiðjuna vegna útsölu félagsins.

Í úrskurði stofnunarinnar kemur fram að Neytendastofa telur Húsasmiðjuna hafa brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og gegn ákvæðum reglna um útsölur og aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði annars vegar með því að hafa vörur á útsölu í meira en sex vikur og hins vegar með því að hafa selt vörur á útsölu án þess að vörurnar hafi verið seldar á því verði sem tilgreint var sem fyrra verð.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu .