Kredia, sem skilgreinir sig sem fyrirtæki á sviði smálána, sms-lána og örlána, hefur nýlega byrjað að bjóða upp á svokölluð smálán.

Um þetta er fjallað á vef Neytendastamtakanna í dag og þau gagnrýnd.

Á vef samtakanna kemur fram að framkvæmdin virðist einföld, allt sem þarf er að skrá sig á netinu og senda svo sms þegar mann vantar pening. Lánin geta verið að upphæð 10.000, 20.000, 30.000 eða 40.000 kr. og þau þarf að greiða upp innan fimmtán daga.

„Ef lánaskilmálarnir eru skoðaðir kemur í ljós að þeir eru ekki í samræmi við lög um neytendalán. Hins vegar er það því miður svo að lán sem eru einungis veitt í fimmtán daga falla ekki undir lög um neytendalán,“ segir á vef samtakanna.

Þá kemur einnig fram að ef lánskjörin eru svo skoðuð nánar kemur í ljós að 10.000 kr. lán í 15 daga kostar 2.500 kr., 20.000 kr. lán kostar 4.750 kr., 30.000 kr. lán kostar 7.000 kr. og 40.000 kr. lán sem veitt er í allt að fimmtán daga kostar 9.250 kr.

„Inni í þessum kostnaðartölum er, skv. upplýsingum af heimasíðu Kredia, kostnaður við lántökuna sjálfa auk vaxta en ekki er nánar sundurgreint hvað er hvað. Kostnaðurinn við minnsta lánið er því 25% sem svarar til 600% kostnaðar á ársgrundvelli,“ segir á vef samtakanna.

„Lán sem þessi hafa verið harðlega gagnrýnd í nágrannalöndum okkar, enda beinist markaðssetningin aðallega að yngri neytendum og þeim sem hafa lítið handa á milli. Þá er ekki hægt að kalla lánskjörin neitt annað en okur. Jafnframt er örðugt að sjá hvernig það leysir einhvern fjárhagsvanda að fá lán sem skal svo greiða tilbaka með allt að 25% álagi innan 15 daga.“

Þá vara Neytendasamtökin fólk eindregið við töku þessara lána og hvetja yfirvöld jafnframt til aðgerða er sporni við slíkum lánveitingum.