Átta íslenskar vefsíður sem bjóða þjónustu tengda farsímum voru athugaðar af Neytendastofu í júlí síðastliðnum.

Aðeins ein vefsíða, vefsíða Símans, var í samræmi við ákvæði laga um óréttmæta viðskiptahætti, laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu og laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga.

Á hinum sjö vefsíðunum sem athugunin tók til skorti einhverjar upplýsingar um seljanda, s.s. nafn, heimilisfang eða kennitölu.

Fram kemur á vef Neytendastofu að stofnunin gerði athugun í júní s.l. sem sneri að sölu þjónustu tengdri farsímum á Netinu, þ.e. hringitónum o.þ.h.

Athugunin var hluti af samræmdum aðgerðum stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd og tóku öll aðildarríki Evrópusambandsins auk Íslands og Noregs þátt.

Þegar sameiginlegar niðurstöður aðgerðarinnar voru kynntar kom í ljós að 80% þeirra vefsíðna sem kannaðar voru uppfylltu ekki öll skilyrði neytendalaga og þörfnuðust nánari athugunar.

Þá kemur fram að í framhaldi af athuguninni sendi Neytendastofa eigendum þeirra vefsíðna sem uppfylltu ekki skilyrði laganna bréf, þar sem gerðar voru athugasemdir við vefsíðurnar og óskað eftir að upplýsingar á síðunni yrðu lagfærðar.

Eigendur vefsíðnanna brugðust allir við tilmælum Neytendastofu og eru síðurnar nú í samræmi við ákvæði framangreindra laga. Ekki mun því vera þörf á frekari aðgerðum Neytendastofu vegna athugunar á sölu þjónustu tengdri farsímum á Netinu að svo stöddu.