Neytendastofa hefur bannað DV ehf. birtingu fullyrðingarinnar „frítt“ og „í kaupbæti“ í auglýsingum dagblaðsins á áskriftarleið með Ipad spjaldtölvu. Þetta kemur fram í frétt á vef Neytendastofu .

Eftirfarandi fullyrðingar var að finna í auglýsingunum: „Fáðu áskrift að DV og þú færð FRÍAN iPad með áskriftinni“ og „Fáðu áskrift að DV og þú færð iPad í kaupbæti með áskriftinni“. Áskriftargjald var ekki tekið fram í auglýsingunni.

„Á vef DV, dv.is, var að finna áskriftarleiðir dagblaðsins, þ.á.m. svonefnda iPad áskrift á 2.998. kr. á mánuði með skuldbindingu í 36 mánuði og Vefáskrift 1 á 895. kr. á mánuði fyrstu þrjá mánuðina og 1.790 á mánuði eftir það. Umræddar áskriftir voru eins að undanskildum iPad að eigin vali.

Neytendastofa taldi að ekki fengist annað séð en að kostnaður vegna iPad spjaldtölvunnar í áskriftarleið DV væri innifalinn í verði áskriftar og því hvorki frí né í kaupbæti þar sem áskriftarleiðin var 334.9% dýrari fyrstu þrjá mánuðina og 167,5% að þeim tíma liðnum miða við áskrift án iPad,“ segir í fréttinni.

Komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að viðskiptahættirnir brytu gegn 5. og 8. gr. laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og 20. tölul. 1. gr. reglugerðar um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir.

Var DV gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 300 þúsund króna.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.