Neytendastofa hefur bannað EJS hf. alla notkun á léninu fartölvur.is og lagt fyrir fyrirtækið að láta afskrá það eftir kvörtun Opinna kerfa ehf., segir í frétt á heimasíðu stofnunarinnar.

Neytendastofa telur að lénin fartolvur.is og fartölvur.is séu í raun eitt og sama lénnafnið með og án íslensks bókstafs. Slíkt skapi hættu á ruglingi og hafi óhagræði í för með sér fyrir kvartandann