Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um að banna fjarskiptafyrirtækinu Tal að nota reiknivél Tals, þar sem neytendur gátu borið símreikning sinn saman við verð hjá Tali til þess að sjá hvort, og hversu mikið, þeir spöruðu á því að flytja viðskipti sín til Tals.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en þar segir að með ákvörðuninni banni Neytendastofa birtingu reiknivélarinnar í óbreyttri mynd þar sem samanburðurinn brjóti gegn lögum.

„Í reiknivélinni var ekki tekið tillit til þess að neytandinn gæti verið með svokölluð vinanúmer sem hann borgaði ekki fyrir en kæmi hugsanlega til með að greiða fyrir hjá Tali,“ segir á vef Neytendastofu.

„Þá var ekki tekið tillit til  þess að viðskiptavinir Símans geta t.d. fengið 50% afslátt af verði símtala í eitt símanúmer í útlöndum. Í reiknivélinni var þvert á móti gert ráð fyrir að verð fyrir útlandasímtöl hjá keppinautum væru þau sömu hjá Tali og því ekki litið til mismunandi verðskrár fyrirtækjanna.“

Fram kemur að í reiknivélinni var verð keppinauta ávallt borið saman við verð í þjónustuleiðinni „Allur pakkinn“ hjá Tali. Allur pakkinn er áskriftarþjónusta þar sem áskrifendur geta lækkað eða jafnvel fellt niður mánaðargjald tiltekinna þjónustuþátta ef þeir eru með alla sína þjónustu hjá Tali. Notendur reiknivélarinnar gátu notað hana til þess að bera t.d. bara saman verð fyrir GSM en reiknivélin gerði þrátt fyrir það ráð fyrir að notandinn væri í Öllum pakkanum. Í þeim samanburði sýndi niðurstaðan því ekki réttan mismun á verði þar sem mánaðargjöld hjá Tali komu ekki fram.

Sjá nánar á vef Neytendastofu.