Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að Hekla hf. hafi brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins með fullyrðingu í fjölmiðlum um 12% meðallækkun í tengslum við varanlegar verðlækkanir hjá félaginu.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en stofnuninni hafði borist kvörtun frá Toyota á Íslandi og Brimborg yfir framsetningu Heklu á verðlækkunum hjá félaginu.

Þar kemur fram að Neytendastofa taldi Heklu hins vegar ekki hafa brotið gegn ákvæðum laganna með fullyrðingu um allt að 17% verðlækkun, með fullyrðingu um að með verðlækkununum séu verðhækkanir frá áramótum að talsverðu gengnar til baka og með fullyrðingu um að algengasta verðlækkun sé á bilinu 9-11%.

Þá telur Neytendastofa ekki hafa verið sýnt fram á að Hekla hafi nýtt sér bágborið efnahagsástand í tilraunum til að blása lífi í sölu nýrra bifreiða.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér