Viðskiptaráðherra hafa verið afhentar niðurstöður könnunar Neytendastofu á innheimtu fjármálafyrirtækja á seðilgjöldum og öðrum fylgikröfum fyrir kröfuhafa.

Könnunin var gerð í tilefni af niðurstöðu starfshóps á vegum viðskiptaráðherra um heimildir fjármálafyrirtækja til gjaldtöku o.fl. og tilmælum viðskiptaráðherra um seðilgjöld sem sett voru fram í kjölfarið.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Þar kemur fram að í könnun Neytendastofu kemur fram að öll fjármálafyrirtæki sem bjóða kröfuhöfum að leggja seðilgjald á kröfur þeirra hafa í hyggju og eru að undirbúa breytt fyrirkomulag innheimtu fylgikrafna fyrir kröfuhafa sem samræmist túlkun starfshópsins á gildandi lögum og fagnar Neytendastofa þeirri niðurstöðu.

Þá kemur fram að hins vegar hafi margar kvartanir borist Neytendastofu um að kröfuhafar sem nýta sér þjónustu fjármálafyrirtækja til innheimtu hafi ekki fullnægjandi heimildir til álagningar seðilgjalda. Neytendastofa hefur þau mál nú til rannsóknar og mun beita sektarheimildum sínum, eftir því sem við á.