Neytendastofa hefur sektað nokkur bakarí á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa gert könnun á á ástandi verðmerkinga í bakaríum dagana 19. – 24. júní sl.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Í kjölfar könnunarinnar sendi Neytendastofa 13 bakaríum tilmæli þess efnis að koma verðmerkingum í viðunandi horf en í byrjun ágúst var könnuninni fylgt eftir og leiddi sú könnun í ljós að níu af þeim 13 bakaríum sem send voru tilmæli stofnunarinnar höfðu ekki farið að þeim.

Neytendastofa hefur því lagt stjórnvaldssektir á Gamla góða bakaríið Borgarholtsbraut, sem rekið er af Bettís ehf., Hjá Jóa Fel Smáralind, Hjá Jóa Fel Holtagörðum, Kornið Bíldshöfða, Kornið Borgartúni, Kornið Ögurhvarfi, Odd bakara Grensásvegi, Sveinsbakarí Engihjalla og Sveinsbakarí Arnarbakka.

Fram kemur á vef Neytendastofu að í öllum bakaríunum voru vörur í kæli óverðmerktar og í tveimur bakaríum var verðmerkingum í borði mjög ábótavant.