Neytendastofa hefur lagt 1,5 milljóna króna stjórnvaldssekt á Símann fyrir villandi og ósanngjarnar auglýsingar. Þetta kemur fram á vefsíðu stofnunarinnar .

Þar segir að annars vegar sé um að ræða fullyrðingu um að Vodafone hafi slökkt á hliðrænum útsendingum RÚV og neytendur hvattir til að flytja sjónvarpsviðskipti sín yfir til Símans. Hins vegar sé um að ræða auglýsingar þar sem ýmist hafi verið fullyrt að 70% landsmanna segi Sjónvarp Símans standa framar helsta keppinaut eða að 70% landsmanna velji Sjónvarp Símans.

„Í ákvörðuninni er um það fjallað að Símanum hafi mátt vera fullkomlega ljóst að það hafi ekki verið ákvörðun Vodafone að slökkva á hliðrænum útsendingum RÚV og því verði fullyrðingin að teljast óvægin. Þá hafi Símanum mátt vera ljóst, af langri framkvæmd Neytendastofu og ákvörðun stofnunarinnar nr. 32/2014, að þegar inntak fullyrðing í auglýsingum er óljóst gagnvart neytendum þá verði skýringar að fylgja,“ segir í frétt Neytendastofu.