Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að banna Eggerti Kristjánssyni hf. sem rekur Íslenskt Meðlæti hf. notkun umbúða utan um grænmeti.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en að mati stofnunarinnar er gefið í skyn á umbúðunum að uppruni grænmetisins sé íslenskur sem er ekki rétt.

Með notkun umbúðanna hafi Eggert Kristjánsson hf. brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Sjá nánar vef Neytendastofu.