Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að World for 2 skuli greiða 50.000 kr. í sekt á dag að fjórtán dögum liðnum verði ekki farið að banni stofnunarinnar við því að áskrift að World for 2 endurnýist sjálfkrafa segi áskrifandi henni ekki upp.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Að mati Neytendastofu eru um að ræða óréttmæta viðskiptahætti og því brot á ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu að endurnýja tímabundna áskrift sjálfkrafa hafi áskrifandi ekki veitt því samþykki t.d. með staðfestingu á skilmálum.

í ákvörðn stofnunarinnar kemur fram að Gullmark ehf. hunsaði ítrekað ábnedingar og fyrirspurninir Neytendastofu um málið.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.