Væntingavísitala Gallup var 139,2 stig í desember og hefur ekki verið hærri frá því mælingar hófust í mars 2001, segir greiningardeild Landsbankans.

?Nokkrar sveiflur hafa verið í vísitölunni að undanförnu en gildi hennar fór niður í 88,1 stig í júlí síðastliðnum. Neytendur meta núverandi ástand í efnahags- og atvinnumálum mjög gott og skýrir það að mestu hátt gildi vísitölunnar. Bæði vísitala fyrir núverandi ástandi og væntingavísitala fyrir ástandið eftir 6 mánuði náðu nýju hámarki nú í desember,? segir greiningardeildin,

Hún segir að vísitala fyrirhugaðra stórkaupa, sem reiknuð er ársfjórðungslega, hækkaði um 3,3 stig í desember frá því í september.

?Þessi vísitala lækkaði á milli mælinga í tveimur síðustu mælingum, í september og júní, en er þó lægri en hún var í mars sl. Vísitala fyrirhugaðra stórkaupa er meðaltal fyrir vísitölur bifreiðakaupa, húsnæðiskaupa og kaupa á utanlandsferðum.

Neytendur fyrirhuga minni bifreiðakaup en áður, en heldur fleiri utanlandsferðir. Fyrirhuguð fasteignakaup vaxa mikið miðað við mælingar í september og júní. Aukin bjartsýni neytenda geta gefið til kynna aukna einkaneyslu,? segir greiningardeildin.