Stjórnvöld hafa ákveðið að framlengja niðurfellingu á virðisaukaskatti á rafbílum til eins árs eða til ársloka 2015. Þá verða vörugjöld einnig áfram felld niður af rafbílum.

Viðskiptablaðið greindi frá því fyrr í vikunni að ekki hefði komið fram staðfesting frá stjórnvöldum um að rafbílar yrðu áfram undanþegnir virðisaukaskatti, líkt og verið hefur. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, lýsti þá yfir áhyggjum sínum og sagði að þetta yrði algjört kjaftshögg fyrir rafbílavæðinguna í landinu. Hann fagnar því að stjórnvöld hafi ákveðið að framlengja undanþáguna.

„Við fögnum þessari ákvörðun stjórnvalda enda er þetta gríðarlega mikilvægt til að rafbílavæðing á Íslandi geti orðið að veruleika. Sala á rafbílum hefur aukist á undanförnum tveimur árum enda hafa rafbílarnir orðið samkeppnishæfir í verði vegna niðurfellingar virðisaukaskatts og vörugjalda sem þeir væru annars ekki því þeir eru ennþá dýrari í framleiðslu en aðrir bílar,“ segir Özur.