Innköllunin er gerð til að endurstilla ræsibúnaðinn sem stjórnar því hvernig loftpúðar bílsins springa út við árekstur framan á hann. Endurstillingunni er ætlað að tryggja hraðari ræsingu loftpúðanna.   Í fréttatilkynningu vegna innköllunarinnar segir að Ingvar Helgason ehf., f.h. Nissan í Evrópu, hafi hafið þjónustuinnköllun bílunum.   Þjónustuinnköllunin nær til allra Navara pallbíla af nýju gerðinni sem seldir voru frá byrjun árs 2005 til loka árs 2007. Eigendum er boðið að heimsækja Ingvar Helgason að Sævarhöfða 2, eða einhvern af viðurkenndu þjónustuaðilunum, til þess að láta endurstilla ræsibúnaðinn.   Ingvar Helgason mun hafa samband við alla eigendur Nissan Navara bréfleiðis til þess að tryggja að bílarnir sem um ræðir séu með þennan endurbætta hugbúnað.   Eigendurnir verða beðnir um að hafa samband við Þjónustuver Ingvars Helgasonar við fyrsta hentugleika. Endurstillingin ætti að taka mjög skamma stund og er eigendunum að kostnaðarlausu.   Í fréttatilkynningu frá Nissan í Evrópu kemur fram að þeim sé ekki kunnugt um að nein óhöpp hafi orðið í tengslum við seldar bifreiðar.