Erlendur karlmaður á þrítugsaldri var þann 20. júlí síðastliðinn dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til níu mánaða fangelsisvistar eftir að hafa orðið uppvís að því að hafa komið fyrir afritunarbúnaði á hraðbanka í miðborg Reykjavíkur. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Maðurinn hefur þegar hafið afplánun dómsins.

Ekki liðu fleiri en átta dagar eftir að rannsókn lögreglu hófst áður en hún leiddi hana á spor hans. Maðurinn var þá handtekinn á Akureyri en búnaðurinn fannst þann 7. júlí síðastliðinn. Það leið því ekki langur tími frá því að upp komst um brotið þar til dómurinn féll.