Níu einstaklingar sóttu um embætti umboðsmanns skuldara. Alþingi samþykkti í júnímánuði frumvarp um tilurð embættisins. Stofnunin mun hafa það hlutverk að gæta hagsmuna og réttinda skuldara.

Einnig mun það annast fjármálaráðgjöf við einstaklinga sem til þessa hefur verið sinnt af Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna. Starfsemi ráðgjafastofunnar mun renna inn í embætti umboðsmanns skuldara.

Umsóknarfrestur rann út í fyrradag og mun starfsemi hefjast 1. ágúst. Hér má sjá lista yfir umsækjendur.

Ásta Sigrún Helgadóttir

Guðmundur Ásgeirsson

Guðrún Hulda Aðils Eyþórsdóttir

Guðrún Jóhannsdóttir

Hallgrímur Þ. Gunnþórsson

Hólmsteinn A. Brekkan

Ólöf Dagný Thorarensen

Runólfur Ágústsson

Sif Jónsdóttir