Níu umsóknir bárust um embætti orkumálastjóra sem iðnaðarráðuneytið auglýsti nýlega. Á vef ráðuneytisins kemur fram að ráðið er í embætti orkumálastjóra til fimm ára frá 1. janúar næstkomandi, en þá lætur Þorkell Helgason orkumálastjóri af embætti.

Listi yfir umsækjendur fer hér á eftir:

1. Agnar Kofoed-Hansen fjármálaráðgjafi

2. Björn Helgason framkvæmdastjóri

3. Egill Benedikt Hreinsson prófessor

4. Guðni Albert Jóhannesson prófessor

5. Kristinn Sigurjónsson lektor

6. Kristján Einir Traustason innkaup og starfsmannahald

7. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir aðstoðarorkumálastjóri

8. Sólveig Bjarney Daníelsdóttir hjúkrunarfræðingur

9. Þórhallur Kristjánsson verkfræðingur