Tíu einstaklingar sóttu um stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur sem auglýst var laus til umsóknar í marsmánuði. Umsóknarfrestur rann út þann 6. apríl sl. En, einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

Umsækjendurnir níu eru:

Auður Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður
Halldóra Arnardóttir, listfræðingur
Jón Andri Óskarsson, nemi
Kristbjörg Ýrr Jónasdóttir, forstöðumaður
Margrét Elísabet Ólafsdóttir, kennari
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður
Tryggvi Jónsson, aðstoðarveitingastjóri
Yean Fee Quay, deildarstjóri
Æsa Sigurjónsdóttir, dósent

Búist er við því að tillaga um ráðninguna muni liggja fyrir í byrjun maí og að nýr safnstjóri taki til starfa í ágúst. Hafþór Yngvason, sem hefur stýrt listasafninu sl. 10 ár, lætur af störfum í haust.

Listasafn Reykjavíkur hýsir þrjú megin söfn í þremur sýningarhúsum; safn Ásmundar Sveinssonar í Ásmundarsafni, safn Jóhannesar Kjarvals á Kjarvalsstöðum og safn verka Erró í Hafnarhúsi. Listasafn Reykjavíkur hefur jafnframt umsjón með myndverkum á almannafæri í eigu borgarinnar.

Í tilkynningu frá safninu segir að safnstjóri sé listrænn stjórnandi með ábyrgð á sýningadagskrá og annarri faglegri starfsemi safnsins í samræmi við alþjóðlegar siðareglur, lög og samþykktir. Safnstjóri beri einnig ábyrgð á stjórnun, rekstri og stjórnsýslu safnsins. Undir verksvið heyra fjármál, starfsmannamál og framkvæmd ákvarðana menningar- og ferðamálaráðs og borgaryfirvalda sem að safninu snúa.