Stjórn Icelandic Group hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Fréttablaðsins í dag ?Skrá IG í Evrópu og Bandaríkjunum". Þar kemur fram að rekstri Icelandic Group hefur um allnokkurt skeið verið skipt upp í tvær einingar, Icelandic Europe og Icelandic USA/ASIA. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að breyta þessu fyrirkomulagi.

"Stjórnendur félagsins hafa lauslega kannað þann möguleika að skrá félagið á erlendum hlutabréfamarkaði. Niðurstaða liggur ekki fyrir um hvort eða með hvaða hætti slík skráning geti átt sér stað," segir í yfirlýsingunni.