Gríðarleg eftirspurn er eftir vörum úr netverslun Nettó og mega viðskiptavinir búast við tímabundnum töfum á afhendingu næstu daga, allt frá nokkrum klukkustundum upp í sólarhingstöf. Félagið er að bæta við bílstjórum til að anna eftirspurn sem aldrei hefur verið meiri í í kjölfar útbreiðslu kórónaveirunnar Covid 19 frá Wuhan borg í Kína.

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um hafa bæði Hagar og Félag atvinnurekenda látið vita af því að engin ástæða sé til að hamstra vörur vegna yfirvofandi samkomubanns sem tekur gildi á mánudaginn vegna veirunnar.

„Netverslunin hefur stækkað gríðarlega hjá okkur síðustu daga og eftirspurnin aldrei verið meiri. Það gæti verið einhver bið eftir vörum frá okkur, allt frá nokkurra klukkustunda töf yfir í sólarhringstöf,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Nettó sem segir starfsfólk félagsins vera að leggja sig fram um að koma vörum til viðskiptavina eins fljótt auðið er.

„Við erum að fjölga bílstjórum og þessi töf verður aðeins tímabundin. Í Danmörku er nú nokkurra daga bið eftir matvörum úr netverslunum þar en við erum sem betur fer ekki komin þangað. Við þökkum viðskiptavinum fyrir sýndan skilning en vörurnar munu skila sér heim á endanum.“

Jafnframt biður Gunnar Egill viðskiptavini að fara að fyrirmælum Almannavarna og Samtaka verslunar og þjónustu.

„Það er nóg til af vörum í landinum og við megum ekki láta skelfingu grípa um sig og hamstra matvörur þótt samkomubann sé yfirvofandi. Allar verslanir Samkaupa, um 60 talsins, verða áfram opnar eftir að samkomubann hefur verið sett á.“