Gengið hefur verið frá kaupum Nóa Síríusar á enska fyrirtækinu Elizabeth Shaw sem er þekkt enskt sælgætisfyrirtæki sem hefur sérhæft sig í framleiðslu og sölu á súkkulaðivörum af ýmsu tagi að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Elizabeth Shaw er með svipaða ársveltu og Nói-Síríus eða sem svarar til um 1.400 milljónum króna.

Núverandi stjórnendur, sem keyptu fyrirtækið árið 2000, munu áfram eiga hlut í því auk þess sem flestir þeirra starfa áfram hjá félaginu og sinna daglegri stjórn. Straumur-Burðarás veitti Nóa-Síríusi ráðgjöf varðandi kaupin.

Samfara kaupunum hefur verið ákveðið að úthýsa framleiðslu fyrirtækisins og hefur um það verið samið við þrjá súkkulaðiframleiðendur, bæði á Englandi og í Þýskalandi. Höfuðstöðvar sölu, markaðsstarfsemi og stjórnunar munu þó áfram verða í Bristol.

Finnur Geirsson, framkvæmdastjóri Nóa-Síríusar, segir að þessi kaup muni ekki hafa teljandi áhrif á starfsemi Nóa-Síríusar hér á landi og muni hún verða á sömu nótum og verið hefur. Hins vegar sé fengur í því fyrir Nóa-Sírius að kynnast og taka þátt í með beinum hætti sambærilegri starfsemi á svo stórum markaði sem Bretland er. Þegar tvö rótgróin fyrirtæki með svo mikla og góða reynslu rugli saman reytum megi vænta ávinnings fyrir þau bæði.

Saga fyrirtækisins nær allt aftur til 19. aldar en þekktustu merki fyrirtækisins eru Mint Crisps, sem eru innpakkaðar súkkulaðiskífur með myntubragði og Famous Names, sem eru líkjörsfylltir konfektmolar.