Nokia hefur seinkað dreifingu og sölu á nýjum síma sem kallast N8 og á að vera svar símarisans við Iphone símanum frá Apple. Segir Nokia að gera þurfi svolitlar breytingar á símanum áður en hafist verði handa við að framleiða hann og selja. Dreifing tefjist því um nokkrar vikur en hún átti að hefjast í lok mánaðarins.

Nokia segist aldrei hafa fengið eins mikið af pöntunum fyrirfram á eina vöru.