Gengi hlutabréfa Haga-samstæðunnar hækkaði um 1,51% í 262 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Þetta voru mestu viðskipti dagsins. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa VÍS um 1,19% og TM um 1,13%. Þá hækkaði gengi bréfa Vodafone um 0,55%.

Hins vegar lækkaði gengi bréfa Eimskips um 0,57% og Icelandair Group lítillega eða um 0,08%.

Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega eða um 0,16% og endaði hún í 1.124 stigum. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam tæpum 680 milljónum króna.