Velta á hlutabréfamarkaði nam 1.786.518.393 krónum í 83 viðskiptum í dag. Á skuldabréfamarkaði nam veltan 7.275.837.936 krónum í 52 viðskiptum, og var því nokkuð rólegra um að litast þar en oft áður. Gengi úrvalsvísitölu lækkaði um 0,49% en aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,19%.

Á hlutabréfamarkaði hækkuðu bréf í Össuri mest, um 0,63% í tveimur viðskiptum þar sem 1.110.081 krónur skiptu um hendur. Næst mest var hækkun á gengi Icelandair Group, eða um 0,54%. Veltan var talsvert meiri þar á bæ, eða 562.192.173 krónur í 17 viðskiptum. Voru það veltuhæstu bréfin, eins og svo oft áður.

Á skuldabréfamarkaði hækkuðu allir flokkar nema ríkisbréf í flokki 17 0206, sem lækkuðu um 0,04%. Ríkisbréf í lengri endanum hækkuðu hins vegar.