Sænski bankinn Nordea og dönsku bankarnir Spar Nord Bank og Arbejdernes Landsbank muni kaupa 21 útibú af hinum aðþrengda banka Roskilde Bank fyrir um 108 milljónir Bandaríkjadala.

Roskilde Bank hefur átt í miklum rekstrarerfiðleikum á þessu ári var þjóðnýttur af danska seðlabankanum í ágústmánuði.

Samkvæmt frétt International Herald Tribune munu bankarnir jafnframt taka yfir lánabók að andvirði 1,96 milljarða dala og innistæður að andvirði 980 milljarða dala.