Icelandair Group og Nordic Visitor skrifuðu í dag undir samning um kaup Nordic Visitor á 100% hlut í Iceland Travel. Alfa Framtak fjármagnar kaupin hjá Nordic Visitor, að því er kemur fram í tilkynningu Icelandair. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Í samningnum er heildarvirði (e. enterprise value) Iceland Travel metið á 1,4 milljarða króna en þar af eru 350 milljónir háðar frammstöðutengdum mælikvörðum út árið 2023. Kaupverðið verður aðlagað að nettó skuldum og rekstrarfjármunum Iceland Travel en fram kemur að nettó skuldir ferðaskrifstofunnar séu óverulegar. Íslandsbanki er ráðgjafi Icelandair við söluna og Arctica Finance er ráðgjafi Nordic Visitor.

Nordic Visitor er sérhæfð ferðaskrifstofa sem selur ferðir sínar beint til einstaklinga (B2C). Félagið býður upp á ferðir um Ísland, Skandinavíu og Skotland.

„Iceland Travel hefur verið leiðandi ferðaskrifstofa á fyrirtækjamarkaði með öflugu og reynslumiklu starfsfólki og sterkum viðskiptasamböndum. Ég er mjög spenntur fyrir því að kynnast betur starfsemi félagsins og starfsmönnum og hefja störf með því starfsfólki sem byggir upp félagið,“ segir Ásberg Jónsson , framkvæmdarstjóri Nordic Visitor, í fréttatilkynningu.

Fyrirtækin Iceland Travel og Nordic Visitor eru að mörgu leyti ólík félög en með samstarfi má byggja upp sterkari heild og auka samkeppnishæfni félagsins gagnvart erlendri samkeppni. Ekki er fyrirhugað að sameina fyrirtækin heldur verður lögð áhersla á að deila þekkingu á milli fyrirtækjanna. Þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi íslenskrar ferðþjónustu þá eru enn mikil tækifæri til uppbyggingar. Ég hef trú á því að ferðaþjónusta á Íslandi muni ná vopnum sínum fyrr en margir telja og samstarf félaganna styðji við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu,“ segir Ásberg.

Salan er í samræmi við stefnu Icelandair Group um að leggja áherslu á kjarnastarfsemi sína, flugrekstur, með hagsmuni íslenskrar ferðaþjónustu, starfsmanna og annarra haghafa í fyrirrúmi.

Icelandair t ilkynnti í lok apríl síðastliðnum um samkomulag við Nordic Visitor um helstu forsendur og skilmála kaupsamningsins en söluferli Icelandair á ferðskrifstofunni hófst í byrjun árs. Viðskiptablaðið sagði frá því í nóvember 2019 að fyrri áformum um sölu ferðaskrifstofunnar hefði verið slegið á frest.

„Það er ánægjulegt að tilkynna um söluna á Iceland Travel til Nordic Visitor. Salan er í samræmi við stefnu Icelandair Group um að leggja áherslu á kjarnastarfsemi félagsins, flugrekstur. Ég vil þakka starfsfólki Iceland Travel fyrir góða samvinnu og þeirra framlag í að byggja upp leiðandi fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu og óska þeim góðs gengis til framtíðar. Ég hef fulla trúa á að með nýjum eigendum muni Iceland Travel taka virkan þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi,“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair.

Árni Jón Pálsson, fjárfestingastjóri hjá Alfa Framtaki, segist hafa mikla trú á fyrirtækjunum.

„Viðskiptin marka ákveðin tímamót nú þegar farið er að sjá fyrir endann á heimsfaraldrinum og útlit er fyrir að ferðaþjónustan sé á hröðum batavegi. Framundan eru krefjandi verkefni sem fela í sér umbreytingar á rekstri og efnahag félaganna og munum við leggja okkar lóð á vogarskálarnar við áframhaldandi uppbyggingu félaganna," segir Árni Jón.