Nordic Visitor hf. hefur keypt ferðaskrifstofuna Terra Nova Sól hf. af Arion banka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Terra Nova var hluti af TravelCo hf. sem var stofnað í kjölfar gjaldþrots PrimeraAir og Arion banki tók yfir í júní síðastliðnum. Kaupin eru meðal annars með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. Kaupverð er trúnaðarmál.

Ásberg Jónsson, framkvæmdarstjóri Nordic Visitor segir í tilkynningu að vonandi verði hægt að aflétta fyrirvara af kaupunum sem fyrst svo hægt verði að hefja samstarf félaganna. „Terra Nova er rótgróið og vel rekið fyrirtæki sem byggt er upp af öflugum mannauði, sterkum viðskiptasamböndum og áratuga reynslu af sölu ferða til Íslands. Fyrirtækin Terra Nova og Nordic Visitor eru að mörgu leyti ólík þegar kemur að dreifileiðum og markaðssvæðum en í því liggja mikil tækifæri. Ekki er fyrirhugað að sameina fyrirtækin heldur verður lögð áhersla á að deila þekkingu á milli fyrirtækjanna. Markmiðið með kaupunum er að halda áfram að bæta rekstur Terra Nova og breikka þjónustuframboð samstæðunnar. Félögin tvo eru í góðum rekstri í dag og eru bæði að skila heilbrigðri afkomu. Þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi íslenskrar ferðþjónustu þá eru enn mikil tækifæri til uppbyggingar. Vonandi verður hægt að aflétta síðustu fyrirvörum kaupanna sem fyrst þar sem ég hlakka til að hitta og hefja störf með öllu því reynslumikla starfsfólki sem hefur byggt upp félagið Terra Nova," er haft eftir Ásgeiri í tilkynningu.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi seljanda og fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance ráðgjafi kaupanda.