Norðurál og OR hafa komist að samkomulagi um að aflétta trúnaði af orkusölusamningi milli aðila. Samningurinn hefur verið birtur í heild sinni á vef Norðuráls. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðuráli.

Um miðjan nóvember 2020 óskaði Norðurál eftir því við alla orkusala sína að trúnaði af langtímasamningum yrði aflétt. Orkuveita Reykjavíkur hefur nú fyrst orkufyrirtækja gengið frá afléttingu trúnaðar af samningum og nær afléttingin til orkusölusamnings frá árinu 2008 þar sem fyrirtækin tvö eru einu aðilarnir að þeim samningi. Sá samningur var gerður vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík en einnig var heimilt að nýta orkuna á Grundartanga. Afhending samkvæmt honum hófst 2011.

„Við fögnum því að Orkuveita Reykjavíkur hafi tekið svona vel í umleitanir okkar um að aflétta trúnaði af samningnum. Þetta er mikilvægt skref í að auka gagnsæi á íslenskum raforkumarkaði, sem við teljum mjög til bóta fyrir bæði kaupendur og seljendur raforku, og jafnframt fyrir íslenskan almenning,“ er haft eftir Gunnari Guðlaugssyni, forstjóra Norðuráls, í tilkynningunni.

Hægt er að skoða samninginn með því að smella hér .