Landsvirkjun segist hafa fylgt lögum í einu og öllu, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá fyrr í dag kvartaði Norðurál Samkeppniseftirlitsins vegna verðlagningar félagsins á raforku.

Landsvirkjun hafnar kvörtunum Norðuráls um að félagið hafi nýtt sér markaðsráðandi stöðu sína á skammtímamarkaði með raforku hér á landi þegar álverið þurfti að greiða hærra verð fyrir viðbótarorku en gátu fengið hjá öðrum framleiðendum.

Landsvirkjun segist hafa borist tilkynning í morgun þess efnis að Norðurál hefði sent erindi til Samkeppniseftirlitsins varðandi kaup á skammtímaorku í sumar. Þar kemur fram að Norðurál telji að Landsvirkjun hafi misnotað stöðu sína sem markaðsráðandi aðili við verðlagningu skammtímaorku. Þessum fullyrðingum er alfarið vísað á bug í tilkynningu félagsins.

Landsvirkjun segist ávallt fylgja ákvæðum samkeppnislaga í starfsemi sinni, m.a. þeim ákvæðum sem banna markaðsráðandi fyrirtækjum að selja orku undir kostnaðarverði og hafa þannig neikvæð áhrif á samkeppni. Ríkisfyrirtækið segir þó að það hafi ekki erindi Norðuráls til Samkeppniseftirlitsins undir höndum.

Landsvirkjun sinni þriðjungi orkuþarfar álversins

Í tilkynningu Norðuráls um kvörtunina til SKE segirst félagið nú í allnokkur ár ekki hafa haft nægjanlega orku í gegnum langtímasamninga til að halda uppi fullri framleiðslu í álverinu.

Álverið hafi tímabundið þurft að kaupa raforku til að fylla upp í skerðingar vegna viðhalds hjá öðrum orkuframleiðendum sem Norðurál kaupir orku af, en Landsvirkjun segir nú að félagið sjái Norðuráli aðeins fyrir um 35% af orkuþörf álversins, sem hefur samið við aðra framleiðendur um 65% orkunnar.

Verð Landsvirkjunar á skammtímaorku hafi hins vegar verið við kostnaðarverð síðastliðin misseri og því ekki verið borð fyrir báru til að selja það lægra verði. Landsvirkjun segist að sjálfsögðu ekki bera ábyrgð á skerðingum annarra raforkuframleiðanda og fyrirtækið sé ekki eini raforkubirginn sem álver og aðrir viðskiptavinir geta leitað til vegna kaupa á skammtímaorku.

Jafnframt bendir Norðurál á að erindi Norðuráls til Samkeppniseftirlitsins haldist í hendur við tilkynningu móðurfélags þess, Century Aluminium, í gær um að álveri fyrirtækisins í Suður-Karólínu verði lokað í desember nk. ef ekki fengist lægra raforkuverð.

Er það óneitanlega sagt vekja spurningu um hvort erindið sé liður í áætlun móðurfélagsins um að þvinga niður raforkuverð á starfssvæðum sínum. Þess má geta að kosningar fara fram í Bandaríkjunum 3. nóvember næstkomandi.