Neytendastofa hefur heimilað þyrlufyrirtækinu Norðurflugi að nota vörumerkið Helicopter service in Iceland.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en annað þyrlufyrirtæki, Þyrluþjónustan, hafði kvartað til stofnunarinnar yfir notkun Norðurflugs á vörumerkinu. Í kvörtuninni kom fram að Þyrluþjónustan ætti skráð vörumerkið Helicopter service Iceland hjá Einkaleyfastofu og notkun Norðurflugs á vörumerkinu bryti á rétti Þyrluþjónustunnar.

Á vef Neytendastofu kemur fram að stofnunin hafi fjallað um það að Þyrluþjónustan eigi skráð orð- og myndmerki hjá Einkaleyfastofu. Skráningin veiti Þyrluþjónustunni ekki einkarétt til orðanna sem í vörumerkinu eru heldur eigi Þyrluþjónustan einkarétt til orðasambandsins í þeirri stílfærðu mynd sem vörumerkið er.

„Neytendastofa taldi orðin helocopter, service og Iceland öll almenn og skorta nægilegt sérkenni til þess að einn aðili geti notið einkaréttar á þeim. Þá væri orðasambandið „Helicopter service Iceland“ svo lýsandi fyrir þá þjónustu sem báðir aðilar veita að Þyrluþjónustan geti ekki átt einkarétt á því,“ segir á vef stofnunarinnar og því hafi hún ekki talið ástæðu til að nbanna vörumerki Norðurflugs.