Helgi Hjörvar, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs og efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, hefur beint fyrirspurn til norrænu ríkisstjórnanna um vaxtakjör á láni Norðurlandanna til Íslands.

Helgi spyr ríkisstjórnirnar hvers vegna Íslandi bjóðist lakari vaxtakjör en Írlandi. Vaxtakjörin á láninu til Íslands eru 3 mánaða EURIBOR vextir að viðbættu 2,75 prósentu álagi. Danmörk og Svíþjóð gerðu hins vegar bæði tvíhliða lánasamninga við Írland þar sem vaxtakjörin eru 3 mánaða EURIBOR vextir að viðbættu 1 prósentu álagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþingi.

Helgi spyr því ríkisstjórnirnar hvers vegna Íslandi bjóðist lakari vaxtakjör en Írlandi og hvort þær hyggist endurskoða vaxtakjörin á láni Íslands, sérstaklega í ljósi þess að skuldatryggingarálag Íslands er lægra en Írlands.