Ein tekjuhæsta teiknimynd allra tíma hefur glætt áður óþekktu lífi í norska fjörðinn Nærøyfjord en sögusvið Disney-myndarinnar Frozen er sagt byggja á landslagi hans. Samkvæmt ferðasíðu Guardian eru ferðamenn farnir að streyma þangað sem og víðar í Noregi í krafti vinsælda kvikmyndarinnar.

Disney hefur einnig gert sértilbúna ferð til Bergen og nærliggjandi svæða sem kostar tæpar 600.000 kr. á hvern fullorðinn einstakling og rétt rúmar 550.000 á hvert barn að frátöldu flugi.