Norlandair hefur skrifað undir samning við grænlensku heimastjórnina um flug frá Íslandi til Nerlerit Inaat (Scoresbysund) tvisvar í viku. Samningurinn er til 6 ára en framlengjanlegur um fjögur ár á þeim tímapunkti. Samningurinn nær til 104 fluga á ári, þar af 24 flug frá Reykjavík en 80 flug frá Akureyri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norlandair.

Í tilkynningunni segir að Norlandair hafi þjónustað íbúa á austurströnd Grænlands um áratuga skeið, auk þess að fljúga fyrir alþjóðlegar rannsóknastofnanir og erlend ríki, s.s. danska herinn. „Félagið hefur haldið uppi áætlun tvisvar í viku undanfarin ár frá Akureyri. Flug frá Reykjavík einnig er viðbót við fyrri samning, auk þess sem í honum er opnað á flug milli staða á Grænlandi,“ segir í tilkynningunni.

„Við erum stolt og ánægð yfir þessu mikla trausti og hlökkum til framhaldsins. Samstarf Norlandair og heimastjórnarinnar á sér djúpar rætur og hefur ávallt verið farsælt. Við hlökkum til að takast á við næstu ár. Við munum sinna þessu flugi með DHC-6 Twin Otter og B200 King Air, ásamt DASH-8 flugvél sem til stendur að innleiða. Breidd flugvélaflotans og sérhæfð þjálfun flugmanna gerir okkur kleyft að fljúga við mjög krefjandi aðstæður og þjónusta þetta harðbýla svæði á öruggan hátt," er haft eftir Friðrik Adolfssyni, framkvæmdastjóra Norlandair, í tilkynningunni.