Forsætisráðherra hefur ákveðið að setja Svein Harald Øygard tímabundið í embætti seðlabankastjóra og Arnór Sighvatsson aðalhagfræðing Seðlabankans tímabundið í embætti aðstoðarseðlabankastjóra. Settur seðlabankastjóri og settur aðstoðarseðlabankastjóri skulu gegna embætti þar til forsætisráðherra hefur skipað í stöðurnar á grundvelli auglýsinga samkvæmt ákvæðum laganna.

Eins og vb.is greindi frá fyrir skömmu hafði Aftenposten fullyrt að Norðmaðurinn Jarle Bergo yrði settur seðlabankastjóri, en það var sem sagt annar Norðmaður sem fékk stöðuna.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir orðrétt um nýjan bankastjóra:

„Svein Harald Øygard, Cand.Oecon., er fæddur árið 1960 og hlaut meistarapróf í hagfræði frá Oslóar Háskóla árið 1985, með þjóðhagfræði sem aðalgrein.

Svein Harald var aðstoðarfjármálaráðherra Noregs á árunum frá 1990 til 1994. Meðal ábyrgðarsviða hans voru þjóðhagfræði, samþætting stefnu í ríkisfjármálum og peningamálastefnu, löggjöf á fjármálasviði og skattamálefni. Hann leiddi m.a. endurskoðun skattalöggjafar í Noregi árið 1992 og sat í starfshópi norsku ríkisstjórnarinnar um hugsanleg efnahagsleg áhrif inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Svein Harald tók þátt í vinnu norskra stjórnvalda er þau tókust á við banka- og gjaldmiðilskreppuna þar í landi árið 1992. Hann sat í efnahagsráði norska Verkamannaflokksins til ársins 2000.

Á árunum 1983 til 1990 starfaði Svein Harald í seðlabanka Noregs, fjármálaráðuneytinu og á norska Stórþinginu. Í fjármálaráðuneytinu hafði hann yfirumsjón með verðbólgugreiningum og tengslum launa og verðlags við aðrar þjóðhagsstærðir.

Svein Harald hefur frá árinu 1995 starfað fyrir ráðgjafarfyrirtækið McKinsey&Company víða í Evrópu, í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku, Asíu, Mið-Austurlöndum og Afríku og var framkvæmdastjóri McKinsey & Company í Noregi frá 2005 til 2007. Í starfi sínu hjá McKinsey & Company hefur Svein Harald einkum unnið að verkefnum og stefnumótun á sviði orku og iðnaðar, skipulagi opinberrar stjórnsýslu og verkefnum tengdum fjármálum.“