Norska fjármálaeftirlitið samþykkti á fundi sínum 21. janúar að mæla með því við norska Fjármálaráðuneytið að heimila kaup Íslandsbanka hf. á BNbank (Bolig- og Næringsbanken ASA) í Noregi. Fjármálaeftirlitið á Íslandi hefur einnig tilkynnt Íslandsbanka hf. að það geri ekki athugasemdir við kaup bankans á BNbank.

Tilboðið í BNbank er nú háð samþykki Fjármálaráðuneytisins í Noregi.