Eftirlaunasjóður norska ríkisins, Olíusjóðurinn svokallaði,  ætlar að selja hlutabréf sín í sautján tóbaksframleiðslu- fyrirtækjum fyrir alls 1,8 milljarða evra og lýsir því jafnframt yfir að hann muni ekki fjárfesta framvegis í tóbaksframleiðslu.

Um þetta er fjallað á vef Landssamtaka lífeyrissjóða (LL) en siðanefnd sjóðsins lagði þetta til við ríkisstjórn Noregs og á vef LL segir að Sigbjörn Johnsen fjármálaráðherra hafi fengið afdráttarlausan stuðning í Stórþinginu við ákvörðun sína.

„Siðareglur Olíusjóðsins norska og framkvæmd þeirra hafa jafnan víðtæk áhrif í fjármálaheiminum, enda er sjóðurinn umsvifamikill alþjóðlegur fjárfestir og áhrifamikill eftir því,“ segir á vef LL.

„Mörg dæmi eru um að aðrir öflugir fjárfestar fylgi í kjölfar Olíusjóðsins þegar hann setur sér ný siðferðisviðmið í fjárfestingum eða skerpir fyrri viðmiðunarreglur þar að lútandi.“

Sjá nánar á vef LL.