Formaður Vinstri flokksins í Noregi og þingmaður, Lars Sponheim, hefur óskað eftir því að Norðmenn aðstoði Íslendinga, í efnahagsþrengingum þeirra. Þetta kom fram í umræðum á norska þinginu í dag.

Þingmaðurinn sagði í umræðum um fjárlögin á þinginu að Norðmenn ættu að aðstoða eyjarskeggjana í vandræðum sínum, enda stæðu Íslendingar Norðmönnum nær.