Helstu samtök í norskum sjávarútvegi hafa sameiginlega farið fram á að stjórnvöld útvegi 5 milljarða norskra króna (jafnvirði 85 milljarða íslenskra króna á gengi Seðlabanka Íslands) til þess að tryggja eðlilegan útflutning sjávarafurða frá Noregi í fjármálakreppunni.

Þessi fjárhæð svarar til þriðjungs af árlegu útflutningsverðmæti hefðbundins sjávarútvegs í Noregi. Fyrst og fremst er beðið um tryggingar og lánafyrirgreiðslu vegna þess að bankakerfið innanlands og erlendis starfar ekki með eðlilegum hætti, segir í frétt á sjávarútvegsvefnum IntraFish. Þetta ástand kemur sérstaklega illa niður á þeim fyrirtækjum sem eru með miklar afurðir í birgðum.

Hingað til hefur sjávarútveginum verið haldið utan við hjálparaðgerðir stjórnvalda í tengslum við fjármálakreppuna en forustumenn þessar atvinnugreinar vilja fá því breytt.