Norvest ehf., félag fjárhagslega tengt Brynju Halldórsdóttur, stjórnarmanni í Kaupþingi banka hf., hefur í dag gert framvirkan samning um kaup á 200.000 hlutum í bankanum, segir í tilkynningu. Norvest er í eigu félaga í eigu Jóns Helga Guðmundssonar fjárfestis.

Gjalddagi samningsins er 1. júní 2007. Meðalverð í viðskiptunum var 812,3763 kr. á hlut.  Þann 23. nóvember gerði Norvest framvirkan samning um kaup á 1.300.000 hlutum í bankanum.

Í tilkynningunni segir að Brynja Halldórsdóttir á 9.206 hluti í bankanum. Aðilar fjárhagslega tengdir Brynju eiga samtals 12.712.048 hluti í bankanum. Eftir viðskiptin eiga aðilar fjárhagslega tengdir Brynju 4.200.000 hluti í bankanum samkvæmt framvirkum samningum. Brynja Halldórsdóttir er varamaður í stjórn Norvest ehf.