Norvest ehf., einkahlutafélag fjárhagslega tengt Brynju Halldórsdóttur, stjórnarmanni í Kaupþingi banka, hefur keypt samtals 637.400 hluti í bankanum fyrir rúmlega 590 milljónir króna, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

600.000 hlutir voru keyptir á verðinu 928 krónur á hlut og 37.400 hlutir voru keyptir á verðinu 907 krónur á hlut. Brynja Halldórsdóttir á nú 9.206 hluti í bankanum en aðilar fjárhagslega tengdir Brynju eiga samtals 12.949.448 hluti í bankanum eftir viðskiptin, segir í tilkynningunni.l

Brynja Halldórsdóttir er varamaður í stjórn Norvest ehf. Eigandi Norvest ehf. er Straumborg ehf.