Norvest ehf., einkahlutafélag fjárhagslega tengt Brynju Halldórsdóttur, stjórnarmanni í Kaupþingi banka hf., keypti í dag, 15. nóvember 2005, samtals 500.000 hluti í bankanum. Meðalverð í viðskiptunum var 599,21 kr. á hlut. Eftir viðskiptin á Norvest ehf. 2,39% hlutafjár í Kaupþingi banka hf.

Brynja Halldórsdóttir á 9.206 hluti í bankanum. Aðilar fjárhagslega tengdir Brynju eiga samtals 18.106.637 hluti í bankanum eftir viðskiptin. Brynja Halldórsdóttir er varamaður í stjórn Norvest ehf. Eigandi Norvest ehf. er Straumborg ehf.