Norvik Banka í Lettlandi, sem Straumborg, félag Jóns Helga Guðmundssonar, á 51% í, hefur að sögn fréttavefjarins BBN aukið eigin fé dótturfyrirtækis síns, Norvik Lizings, um ríflega 700 þúsund evrur, eða sem nemur 70 milljónum króna.

Mun aukningin gerð til að styrkja rekstur félagsins í upphafi, en það var stofnað seinasta vor. Eignarleigufyrirtækið Norvik Lizing er alfarið í eigu Norvik Banka.