Gengið hefur verið frá kaupum Norvík hf. á öllu hlutafé Jarl Timber, sem rekur sögunarmyllu í suður Svíþjóð. Norvík mun yfirtaka reksturinn 1. nóvember 2007.
Jarl Timber er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur starfrækt sögunarmyllu síðan 1946 í Broakulla, sem staðsett er miðja vegu milli Vaxjo og Kalmar í Smálöndum í Svíþjóð. Fyrirtækið framleiðir árlega um 150.000 m3 af söguðu timbri og er ársvelta þess ríflega
3 milljarðar ISK. Afurðir Jarl Timber eru að mestu leyti seldar á Bretlandsmarkaði.
Innan Norvíkur fellur Jarl Timber undir Norvik Timber Industries (NTI) sem eftir kaupin rekur timburtengda starfsemi í 5 löndum, Lettlandi, Eistlandi, Rússlandi, Bretlandi og nú í Svíþjóð. Undir NTI starfa í Lettlandi fyrirtækin Vika Wood og BYKO Lat við sögun og virðisaukningu á timbri og framleiðslu glugga, hurða og húseininga. Í Eistlandi starfar sögunarmyllan EWP og í Rússlandi er rekið net innkaupafyrirtækja, skógarhöggsfyrirtæki og sögunarmylla undir merkinu Norwood. Á Bretlandi starfar svo CWP, sem sérhæft er í sölu og dreifingu á timbri á Bretlandsmarkaði. Afurðir NTI eru seldar um heim allan en stærsti hlutinn fer til til Evrópu, Japans og N-Afríku. Árleg heildarframleiðsla á timbri NTI fyrirtækja verður eftir kaupin á Jarl Timber um 750.000 m3 og árleg velta um 20 milljarðar ISK. Gert er ráð fyrir að innan skamms verði framleiðslan komin í 1.000.000 m3 á ári sem samsvarar um tífaldri neyslu Íslendinga á timbri.
Framleiðsla Jarl Timber fellur vel að núverandi starfsemi fyrirtækja NTI, sérstaklega hvað varðar framleiðslu fyrir Bretlandsmarkað þar sem sölustarfsemi CWP er mjög vaxandi. Jarl Timber mun einnig sækja styrk í núverandi sölustarfsemi NTI og þannig finna bestu mögulegu markaði fyrir afurðir sínar hverju sinni. Framleiðslutæknilega er Jarl Timber ennfremur mjög framarlega, sem mun styrkja útrás NTI í Rússlandi.
Framkvæmdastjóri Jarl Timber er Henrik Jarl.