Norska flugfélagið Norwegian mun áfram fljúga milli Oslóar og Keflavíkur í vetur líkt og félagið gerði í sumar. Greint er frá þessu á túristi.is. Norwegian hefur flogið milli Noregs og Íslands alls þrisvar í viku frá byrjun sumars.

Haft er eftir fjölmiðlafulltrúa Norwegian að flugleiðin hafi gengið vel og því hafi verið ákveðið að fljúga allt árið. Icelandair og SAS fljúga sömu leið og næsta sumar hyggst Iceland express einnig fljúga milli Keflavíkur og Oslóar.