Norska flugfélagið Norwegian mun hefja áætlunarflug milli Keflavíkur og Osló í byrjun júní 2012. Þetta staðfestir talskona félagsins við vefsíðuna Túristi . Flogið verður þrisvar sinnum í viku.

Markmið félagsins er að fljúga allt árið en fyrst verður aðeins flogið um sumarið. Icelandair og SAS fljúga leiðina allt árið og Iceland Express á sumrin.

Í frétt Túrista kemur fram að ódýrustu flugmiðarnir hjá Norwegian aðra leið verði seldir á 399 norskar, sem jafngildir um 8100 íslenskum krónum. Við það bætast 60 norskar krónur fyrir hverja tösku sem er innrituð.