Norska flugfélagið Norwegian ætlar að byrja að fljúga frá Tenerife til 16 evrópskra áfangastaða í haust. Félagið hóf flug til Íslands í júní fyrir um ári síðan.

Áætlað er að tvær vélar verði í umferð á Tenerife Sur flugvellinum á suðurhluta Tenerife um vetrarmánuði enn ein vél á sumrin. Ferðamannaráð Kanaríeyja gera ráð fyrir að með þessu skapist tekjur fyrir um 29 milljónir evra fyrir Tenerife á fyrsta rekstrarári Norwegian á eyjunni.