Minnihluti atvinnuveganefndar segir í nefndaráliti að kísilver mengi mun meira en álver. Áætlað er að kísilver þýska fyrirtækisins PCC muni hefja starfsemi sína á Bakka í ársbyrjun 2016.

Sveitarstjóri Norðurþings segir menn nota þá mælikvarða um mengun sem henta hverju sinni. VB Sjónvarp rædd við Berg Elías, sveitarstjóra Norðurþings, á Húsavík.