Árið 2017 notuðu 79% fyrirtækja á Íslandi samfélagsmiðla. Það er hæsta hlutfall í Evrópu, en samfélagsmiðlar voru notaðir af 47% fyrirtækja í Evrópusambandsríkjunum 28 að meðaltali. Miðað er við fyrirtæki sem eru með 10 starfsmenn eða fleiri að því er kemur fram á vef Hagstofunnar .

Samfélagsmiðlar eru flokkaðir eftir tegund miðils og á Íslandi eru 77% fyrirtækja með samskiptasíður, 17% með vefsíður til að deila margmiðlunarefni, 16% með bloggsíður/tilkynningasíður og 3% með wiki-síður. Þá eru 82% fyrirtækja á íslandi með eigin vef, en 63% eru hvort tveggja með eigin vef og á samfélagsmiðlum.